© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)
Heildarsala skuldabréfa í verðbréfaútboðum í maí 2011 nam 10,069 milljörðum króna á söluverði samanborið við 18,144 milljarða króna mánuðinn áður. Salan dregst því saman um rúmlega 8 milljaðra króna. Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabanka Íslands.

Útboð í formi verðtryggðra skuldabréfa námu 5,901 milljörðum króna og útboð í formi óverðtryggðra skuldabréfa námu 4,168 milljörðum króna.