Heildareignir innlánsstofnana námu 2.881 ma.kr. í lok nóvember 2010 og hækkuðu um 48 ma.kr. frá síðasta mánuði að því er fram kemur í efnahagsyfirliti Seðlabankans fyrir íslenska bankakerfið tímabilið frá október 2008 til nóvember 2010.

Heildarskuldir innlánsstofnana námu 2.453 ma.kr. í lok nóvember. og hækkuðu um 17,7 ma.kr. á milli mánaða. Eigið fé innlánsstofnana nam í lok nóvember 428 ma.kr. hækkaði um 30 ma.kr. frá fyrra mánuði.

Útlán Arion banka hf, Íslandsbanka hf og NBI hf eru í þessum tölum metin á kaupvirði þ.e. því virði sem þessir aðilar keyptu útlánasafnið á af Kaupþing banka hf , Glitni hf og Landsbanka Íslands hf. Kaupvirðið er það virði sem vænt er að muni innheimtast af útlánunum.

Virði útlánasafnsins endurspeglar því ekki skuldastöðu viðskiptavina. Lánasöfnin eru endurmetin með reglubundnum hætti, sem getur leitt til hækkunar eða lækkunar á virði einstakra lána. Breytingar milli mánaða/ársfjórðunga á útlánasafni þessara aðila geta því stafað af endurmati á virði lána eða af raunverulegum lánahreyfingum.

Gögnin sem nú eru birt fyrir tímabilið október 2008 – nóvember 2010 eru bráðabirgðagögn og miðast við þær upplýsingar frá bönkum og sparisjóðum sem nú eru tiltækar. Þar sem töluverð óvissa ríkir um mat á eignum í kjölfar bankahrunsins kunna gögnin að breytast eftir því sem áreiðanlegra verðmat verður til.

Það er mat Seðlabankans að gögnin sem nú eru birt gefi ágæta heildarmynd af eigna- og skuldastöðu bankakerfisins þó fara verði varlega í að draga of miklar ályktanir af ýmsum undirliðum gagna um útlán og niðurfærslur þar sem unnið er að því að samræma framsetningu þeirra.