Heildarútgjöld ríkissjóðs á fyrstu sex mánuðum ársins voru innan fjárheimilda að því er fram kemur í ársfjórðungsuppgjöri sem sýnir stöðu fjármála innan ársins hjá einstökum ríkisaðilum í A-hluta ríkissjóðs með hliðsjón af veittum fjárheimildum. Meirihluti fjárlagaliða er innan fjárheimilda á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram í frétt á vef fjármálaráðuneytisins .

Heildarútgjöldin námu 319,7 milljörðum króna á tímabilinu og voru innan fjárheimilda sem nemur 104 milljónum króna. Þegar tekið er tillit til fjárheimildastöðu fyrra árs er afgangur upp á 2,8 milljarðar króna.

Samtals eru 233 fjárlagaliðir með útgjöld innan heimilda ársins, sem nemur 9,8 milljarðar króna og bætist við rúmlega 3 milljarða króna afgang frá fyrra ári.

Hins vegar eru 123 fjárlagaliðir með útgjöld umfram fjárheimildir ársins en hjá meirihluta þeirra er hallinn innan við 10 milljónir króna eða samtals 233 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að flestir þessara liða verði innan heimilda í árslok.