Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 1,2 milljarða króna árið 2014 eða sem nemur 0,1% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 34,8 milljarða króna árið 2013 eða 1,9% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu 907,0 milljörðum króna og jukust um 111,3 milljarða króna milli ára eða um 14,0%. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,6%. Útgjöld hins opinbera voru 908,2 milljarðar króna og jukust um 9,4% en hlutfall þeirra af landsframleiðslu var 45,7%. Frá þessu er greint í Hagtíðindum .

Heildarútgjöld til heilbrigðismála voru 176 milljarðar króna 2014 eða 8,9% af landsframleiðslu. Til fræðslumála var ráðstafað 158 milljörðum króna 2014 eða 8,0% af landsframleiðslu. Hrein peningaleg eign hins opinbera var neikvæð um 1.000 milljarða króna árið 2014 eða 50,3% af vergri landsframleiðslu og er það 30 milljörðum verri staða en 2013.