Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæplega 3,6 milljörðum króna í janúar.

Þar af voru tæpir 2,2 milljarðar vegna almennra lána og tæpir 1,4 milljarðar vegna leiguíbúðalána.

Þetta kemur fram á vef Íbúðalánasjóðs.

Þar kemur fram að meðalútlán almennra lána voru um 10,7 milljónir króna í janúar en það er um 14% minna en í fyrra mánuði. Ef miðað er við sama tíma í fyrra þá hafa meðalútlán almennra útlána hækkað um rúmlega 11%.