Alls námu heildarútlán Íbúðalánasjóðs tæpum 1,6 milljörðum króna í ágúst. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmlegir 100 milljónir vegna leiguíbúðalána.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Þar kemur fram að heildarútlán sjóðsins drógust því saman um rúm 36 % frá fyrra mánuði. Meðalútlán almennra lána voru um 9,8 milljónir króna í ágúst sem er um 3% minna en í fyrra mánuði. Þar með nema heildarútlán sjóðsins rúmum 21,4 milljörðum það sem af er árinu 2009 sem er um 46% minni útlán en fyrir sama tímabil árið 2008.

Þá var í ágúst undirritaður samningur milli Íbúðalánasjóðs og Sparisjóðs Bolungarvíkur um kaup á safni skuldabréfa tryggðu með veði í íbúðarhúsnæði að fjárhæð rúmlega 425 milljónir króna. Kaupin eru gerð í samræmi við heimild til slíkra kaupa lögum og reglum Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja.

Íbúðalánasjóður greiddi 80% af uppreiknuðu virði safnsins með afhendingu íbúðabréfa úr flokki HFF150434 að fjárhæð 160.000.000 og HFF150644 að fjárhæð kr. 83.559.476 að nafnverði. Eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa Sparisjóðs Bolungarvíkur á Íbúðalánasjóð sem mun verða gerð upp að 8 árum liðnum.

Þá er Sparisjóði Bolungarvíkur óheimilt að lána eða selja ofangreind íbúðabréf á eftirmarkaði og einungis heimilt að nota íbúðabréfin í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands. Kjósi Sparisjóður Bolungarvíkur að selja íbúðabréfin skuldbindur hann sig til að skipta sölu bréfanna niður á þrjú ár þannig að hámarksfjárhæð bréfa sem heimilt er að selja á hverju ári, fyrst á árinu 2010, sé 1/3 af nafnverðsfjárhæð afhentra bréfa. Jafnframt áskilur Íbúðalánasjóður sér á þessu ári rétt til að skipta ofangreindum íbúðabréfum út fyrir bréf úr nýjum flokki íbúðabréfa sem stofnaður verður á árinu, þannig að uppreiknuð staða bréfanna við skiptin jafngildi markaðsvirði bréfanna úr flokkunum á skiptadegi.