Heildarvelta kreditkorta í júlímánuði var 24 milljarðar króna samanborið við 27,2 milljarða á sama tíma í fyrra og er þetta 11,8% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en þar kemur fram að heildarvelta kreditkorta dróst saman um 5,8% í júlí miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í júlí 36,1 milljarður sem var 6,3% aukning frá fyrri mánuði. Sé heildardebetkortavelta borin saman við sama tíma í fyrra hefur heildardebetkortaveltan aukist um 5% milli ára.