Heildarvelta kreditkorta í aprílmánuði var 24 milljarðar króna samanborið við 27,9 milljarða á sama tíma í fyrra og er þetta 14% samdráttur milli ára.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans.

Heildarvelta kreditkorta jókst þó um 16% í apríl miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í apríl 28,8 milljarðar króna sem er svipuð velta og í mars. Samanborið við sama tíma í fyrra dróst heildardebetkortaveltan í apríl saman um 3,8 milljarða milli ára eða um 13%.