Kauptilboð fjárfestahópsins sem hugðist kaupa Sjóvá hljóðaði upp á um 11 milljarða króna . Þetta kemur fram í aðsendri grein Heiðars Más í Morgunblaðinu í dag en hann fór fyrir fjárfestahópnum.

Þar segir Heiðar að Seðlabankinn og aðrir seljendur verði af miklum verðmætum auk þess sem þetta kunni að leiða til skaðabótaskyldu bankans.