Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2006 var 357 milljarðar og er það aukning um tæpan 61 milljarð frá árinu 2005, segir í tilkynningu Hagstofunnar.

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2006 án fiskvinnslu var 242 milljarðar samanborið við 195 milljarða árið 2005, sem er aukning um rúma 47 milljarða milli ára.

Í 13 atvinnugreinum af 17 jókst verðmæti seldra framleiðsluvara. Hlutdeild atvinnugreina í söluverðmæti framleiðsluvara er stöðug milli áranna 2005?2006 þar sem hlutdeild matvæla- og drykkjarvöruiðnaðar vegur þyngst með 49,5% af heildarverðmæti árið 2006, þar af 32,2% vegna fiskvinnslu, segir í tilkynningunni.