Rammi hf hefur samið við Völku um kaup á skurðavél og flokkunarbúnaði fyrir vinnslu fyrirtækisins í Þorlákshöfn. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu.

Kaupin eru stór þáttur í þeirri stefnu Ramma að leggja aukna áherslu á vinnslu fjölbreyttari afurða á samkeppnishæfan hátt. Nýja vatnsskurðavélin frá Völku mun skera flök, bæði fersk og léttsöltuð, auk þess sem hún verður nýtt við skurð á heilum flatfiski, sem er nýjung hér á landi. Vatnskurðarvél Völku býður vinnslum á borð við Ramma upp á þann möguleika til að taka inn ólíkar tegundir og vinna úr þeim fjölbreytta afurðaflóru með hámarks nýtingu.

Rammi starfrækir humar- og bolfiskvinnslu í Þorlákshöfn og gerir þaðan út tvö ísfisksskip. Valka og Rammi hafa átt í góðu samstarfi undanfarin ár en árið 2017 var sett upp skurðavél frá Völku í Sólbergi ÓF 1, sem var aflahæsti frystitogari síðasta árs.

„Nú hefur veiði á humar snarminnkað undanfarin ár og til þess að bregðast við því munum við leggja aukna áherslu á frekari og fjölbreyttari vinnslu á bolfiski og flatfiski. Við ákváðum að semja við Völku um þessi kaup þar sem skurðarvélin er öflug og sveigjanleg og býður upp á að framleiða samhliða afurðir úr bolfiski og flatfiski,” segir Jón Páll Kristófersson, rektstrarstjóri Ramma hf. í Þorlákshöfn.

Skera flatfisk fyrir hádegi og þorsk eftir hádegi með sömu vél

,,Það er alltaf að koma betur og betur í ljós hversu fjölhæf og sveigjanleg skurðarvélin okkar er og er nýting hennar nú ekki eingöngu bundin við skurð á flökum, heldur er hún nú einnig nýtt við skurð á heilum flatfiski. Með sömu vél er sem dæmi hægt að skera heilan flatfisk fyrir hádegi og þorskflök eftir hádegi og nýtist hún því vel vinnslum, eins og Ramma í Þorlákshöfn, sem eru með fjölbreytta afurðaflóru. Þegar er verið að nýta vélar frá okkur við skurð á heilum flatfiski með góðum árangri í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu en þetta er í fyrsta sinn sem nýta á hana við þannig skurð hér á landi,“ segir Guðjón Ingi Guðjónsson, sölustjóri hjá Völku.