Hagnaðurinn er viðsnúningur frá árinu áður, þegar félagið tapaði 3,0 milljónum króna.

EBITDA fyrirtækisins nam 4,6 milljónum króna í fyrra en hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 900 þúsund krónur. Eignir Lauga Spa námu 30,4 milljónum króna um síðustu áramót, en eigið fé nam 2,8 milljónum.

Hafdís Jónsdóttir er eigandi og framkvæmdastjóri Lauga Spa.