Í tilefni Kvenréttindadags Íslands hefur heimasíða Glitnis, www.glitnir.is, breytt um útlit, segir í frétt frá bankanum.

Í stað rauða einkennislitar bankans er heimasíðan orðin fagurbleik. Með þessu skemmtilega uppátæki fagnar Glitnir því að rúm 90 ár eru liðin frá því að Alþingi samþykkti lög um kosningarrétt kvenna.