Fasteignafélagið Heimavellir hefur lækkað um 7,89% í 6 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni það sem af er degi.

Í gær var greint frá því að félagið AU 3 ehf. hafi fallið frá kaupum á allt að 27% hlut í félaginu sem greiða átti 4 milljarða króna fyrir.

Verð á hlutabréfum í Icelandair hefur einnig lækkað eða um 2,97% í 144 milljóna króna viðskiptum.