Í dag sameinast rekstur Heimavalla hf. samstæðu Heimstaden AB og tekur upp nafnið Heimstaden hf., en Heimstaden er þriðja stærsta einkarekna leigufélag Evrópu með höfuðstöðvar í Malmö í Svíþjóð.

Norska félagið Fredensborg AS mun áfram vera eigandi alls hlutafjár Heimstaden hf. í gegnum Fredensborg ICE ehf., en Fredensborg gerði yfirtökutilboð í Heimavelli fyrir 17 milljarða króna og afskráði félagið úr kauphöll í kjölfarið síðastliðið sumar.

Heimstaden starfar í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Hollandi, Þýskalandi og Tékklandi. Ísland er sjöunda landið þar sem Heimstaden hefur starfsemi sína. Undanfarin ár hefur Heimstaden þróað rekstrarlíkan á leigumarkaði sem byggir á hugmyndafræðinni um „vinaleg heimili“ (Friendly homes).

Sú hugmyndafræði hefur stuðlað að aukinni ánægju viðskiptavina félagsins í Evrópu. Sem hluti af Heimstaden samstæðunni mun Heimstaden á Íslandi starfa í samræmi við hugmyndafræðina að baki „vinalegum heimilum“.

„Heimstaden hefur sýnt í verki að það hugsar til langs tíma, tekur samfélagslega ábyrgð sína alvarlega ásamt því að leggja mikla áherslu á umhverfismál,“ segir Gauti Reynisson framkvæmdastjóri Heimstaden hf.

„Okkur er það sönn ánægja að bætast við Heimstaden samstæðuna og hlökkum til að aðlaga okkur að hugmyndafræði félagsins og auka þjónustu við viðskiptavini okkar með tilheyrandi jákvæðum áhrifum fyrir viðskiptavini okkar og samfélögin þar sem Heimstaden starfar.“