Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismana í Reykjavík, hefur sent frá sér ályktun þar sem hann hvetur stjórnvöld til að sitja á sér með afskipti af myntörkfulánum og samningum þess efnis í kjölfar Hæstaréttar. Heimdallur segir í ályktuninni að samningarnir séu áfram í gildi þó eitt ákvæði þeirra hafi verið metið ólögmætt. Þá vill tekur Heimdallur fram að það sé brýnt að það sé haft í huga að fyrirtækin starfi á eigin ábyrgð en ekki ábyrð skattgreiðenda.

Ályktun Heimdallar:

Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hvetur stjórnvöld til þess að sitja á sér með afskipti af svokölluðum myntkörfulánum og samningum þess efnis í kjölfar dóms Hæstaréttar. Samningarnir eru áfram í gildi þó eitt ákvæði þeirra hafi verið metið ólögmætt. Í samningum felst alltaf ákveðin áhætta og í þessu tilfelli verða fyrirtækin að axla ábyrgðina á því að verðtrygging lánanna var ólögmæt, rétt eins og fyrirtækin sjálf fóru fram á að skuldarar virtu samningana og tækju á sig hallann af gengisþróuninni fram að því að dómar Hæstaréttar féllu. Íhlutun stjórnvalda í samningana með lagasetningu eða öðrum leiðum væri auk þess enn eitt dæmið þar sem hið opinbera kæmi fyrirtækjum til bjargar í kjölfar mistaka sem gerð eru. Brýnt er að hafa í huga að fyrirtækin starfa á eigin ábyrgð en ekki stjórnvalda eða skattgreiðenda.