Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, hefur gefið út ákæru á hendur Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, vegna framgöngu hans í Icesave-málinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlyni Jónssyni, formanni Heimdallar en þar segir að tilgangurinn með ákærunni sé að vekja athygli á þeim „skrípaleik sem átt hefur sér stað á Alþingi undanfarna daga sem endaði með því að Alþingi samþykkti ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,“ eins og það er orðað í tilkynningunni.

„Steingrímur hefur oftar en einu sinni sýnt það í orði og verki að hugur hans í málinu stendur ekki til þess að gæta hagsmuna Íslendinga, heldur hefur hann þvert á móti gerst sekur um að halda uppi málstað Breta og Hollendinga gegn íslensku þjóðinni,“ segir Hlynur.

Þá segir í jafnframt að þeir þingmenn sem greiddu atkvæði með ákærum á hendur fyrrverandi ráðherrum virðist margir vera þeirrar skoðunar að leiði stjórnmálastefna einstakra ráðherra til ófara fyrir þjóðina beri að ákæra viðkomandi.

„Ef þetta er sá háttur mála sem á að viðgangast hér eftir liggur beint við að höfðað verði mál á hendur Steingrími J. Sigfússyni, enda mun ríkari ástæður til ákæru á hendur honum, en ráðherrum í seinna ráðuneyti Geirs H. Haarde,“ segir Hlynur.

„Hvorki Geir H. Haarde né aðrir ráðherrar í ríkisstjórn hans gengu með ásetningi gegn hagsmunum þjóðarinnar. Hins vegar má færa fyrir því þung rök að hið gagnstæða eigi við um háttsemi Steingríms J. Sigfússonar í Icesave-málinu þegar efnisatriði þess máls eru krufin til mergjar.“