Stjórn Heimdallar stendur fyrir krónusölu á Lækjartorgi kl 17.00 í dag. Í skiptum fyrir krónurnar tekur Heimdallur við öllum frjálsum gjaldmiðlum.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að með sölunni vilji Heimdellingar mótmæla gjaldeyrishöftunum og hvetja stjórnvöld til að afnema þau hið fyrsta.

Salan var auglýst í Morgunblaðinu í dag en hér má sjá tilkynningu frá félaginu:

Sala á íslenskum krónum
Sala á íslenskum krónum