Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur heimilað Landsneti hf. að framkvæma eignarnám á tilteknum landsréttindum í óskiptu landi jarðarinnar Reykjahlíðar vegna lagningar Kröflulína. Háspennulínurnar liggja frá Kröflu að Þeistareykjum og þaðan að iðnaðarsvæði á Bakka við Húsavík. Þetta kemur fram í frétt frá Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.

„Eignarnámsbeiðnin hefur verið til meðhöndlunar í ráðuneytinu frá því í september 2015. Með hliðsjón af dómum Hæstaréttar sem féllu í vor vegna Suðurnesjalínu 2 taldi ráðuneytið að rannsaka þyrfti betur möguleika á því að leggja viðkomandi raflínur í jörðu. Ráðuneytið óskaði því í kjölfarið eftir frekari upplýsingum frá Landsneti um samanburð á valkostum og barst ráðuneytinu skýrsla þess efnis sem send var í framhaldinu í rýni hjá tveimur sérfróðum aðilum auk Orkustofnunar.

Þegar þau gögn lágu fyrir var skorað á eignarnámsbeiðanda og landeigendur að skoða málið í ljósi nýrra upplýsinga og freista þess að nýju að ná samningum. Eftir þessa áskorun náðust samningar við þrjá landeigendur til viðbótar og því var eignarnámsbeiðni hvað þá varðar dregin til baka 19. ágúst síðastliðinn.

Eftir ítarlega gagnaöflun og rannsókn ráðuneytisins á öllum málavöxtum og sjónarmiðum eignarnámsbeiðanda og eignarnámsþola telur ráðuneytið að málið sé nægilega upplýst til ákvörðunar og að öll lagaskilyrði fyrir heimild til eignarnáms séu fyrir hendi. Var því í dag gefin út ákvörðun um að heimila eignarnám á því landi sem um ræðir.

Í ákvörðun um að heimila eignarnám felst ákveðinn afnotaréttur af viðkomandi jörðum fyrir Landsnet í þágu framkvæmdarinnar. Um bætur vegna eignarnámsins fer samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms og sker matsnefnd eignarnámsbóta úr ágreiningi um eignarnámsbætur,“ segir í fréttinni.