Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur heimilað framleiðslu á ís í Efstadal að nýju eftir lokun framleiðslunnar í kjölfar þess að 21 einstaklingur fengu E. coli sýkingu af því að neyta ís frá bænum.

Var ákvörðun um opnunina tekin í kjölfar eftirlitsferðar í ferðaþjónustuna í Efstadal 2 í gær sem gerð var til að sannreyna úrbætur sem eftirlitið hafði krafið framleiðsluna um 18. júlí síðastliðinn.

Var framleiðsla á ís á staðnum stöðvuð þann 5. júlí síðastliðinn, og hefur hún ekki verið heimil þangað til nú. Hins vegar var sala á ís á staðnum heimiluð eftir að alþrif og sótthreisnun hafði verið gerð.

Samkvæmt úttekt Heilbrigðiseftirlits Suðurlands er úrbótum lokið og heimilt að hefja starfsemina að nýju enda hafði verið farið í eftirfarandi úrbætur:

  • a.    Alþrif og sótthreinsun á veitingasvæði, hurðum, göngum og salerni. Kælar tæmdir og þrifnir.
  • b.    Mat í opnum umbúðum var fleygt.
  • c.    Gangar, loft, handrið og wc málað.
  • d.    Stétt þrifin með 80 °C heitum vatni og Virkioni dreift.
  • e.    Að auki var búið að loka fyrir alla lausagöngu dýra, líka hundsins.

Lausaganga verður ekki leyfð fyrr en handþvottaaðstöðu hefur verið komið upp fyrir gesti og aðskilnaður á milli dýra og veitingasvæða efldur.

Þrátt fyrir að handþvottaaðstöðu hafi verið komið upp fyrir utan við veitingaaðstöðuna verður ekki um lausagöngu dýra að ræða um svæðið að svo komnu máli  á næstunni skv. ákvörðun staðarhaldara. Ísbúðin hefur jafnframt verið endurnýjuð og heimilt að opna hana að nýju.

Framleiðsla á ís hefur verið heimiluð og var sannreynt með sýnatöku að framleiðslan uppfyllir örverufræðilegar kröfur, en þær niðurstöður bárust frá rannsóknarstofunni í dag.
Ítarefni