Héraðssaksóknara hefur verið veitt heimild til húsleitar á starfsstöðvum Eimskipafélags Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. á grundvelli úrskurðar héraðsdóms. Embættið hefur óskað eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020.

Í tilkynningu Eimskips kemur fram að engir einstaklingar hafa réttarstöðu í málinu. Félagið vinni nú að því að afla þeirra upplýsinga sem héraðssaksóknari hefur óskað eftir.

„Eimskip þykir málið mjög leitt og lítur það alvarlegum augum enda leggur félagið, stjórnendur þess og starfsfólk mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð í störfum sínum og hefur lengi hugað að umhverfismálum í sinni starfsemi,“ segir í tilkynningunni. „Eimskip mun eftir fremsta megni leitast við að veita héraðssaksóknara allar þær upplýsingar sem um er beðið.“

Umrætt mál var tekið til umfjöllunar í þættinum Kveik á RÚV í september 2020. Skipin tvö fóru í niðurrif í brotajárn í skipakirkjugarðinum í Alang á Indlandi en stórir fjölmiðlar á borð við BBC höfðu fjallað um slæman aðbúnað verkafólks þar og brot á alþjóðasamþykktum um meðferð spilliefna um borð.

Síðar sama mánuð kærði Umhverfisstofnun Eimskip vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs og reglugerða setta á grundvelli þeirra.

Sjá einnig: Kæra Eimskip til saksóknara

„Félaginu er ómögulegt að leggja mat á möguleg fjárhagsleg áhrif en ákvæði laganna hafa að geyma heimildir til beitingu viðurlaga án þess að vísað sé til sérstakra fjárhæða. Eina fjárhæðin sem lögin gefa vísbendingar um er heimild Umhverfisstofnunar til að beita lögaðila stjórnvaldssektum að fjárhæð allt að 25 milljónir króna,“ segir Eimskip í tilkynningu sem send var út um tvöleytið í dag.