Farið er yfir sögu þeirra Sergey Brin og Larry Page, stofnenda Google, í nýjasta þætti af Bloomberg Game Changers. Þáttinn má sjá hér . Í þættinum er rætt við einstaklinga sem standa þeim nærri og saga félagsins rakin.

Þeir Brin og Page kynntust í Stanford-háskóla í Bandaríkjunum og reka nú eitt stærsta fyrirtæki heims. Áhrif þeirra á daglegt líf fólks eru ótvíræð, með leitarvélinni Google og öðrum verkum þeirra líkt og Google Maps.