Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur með reglugerðarbreytingu rýmkað heimildir Íbúðalánasjóðs til að koma til móts við lántakendur sem lenda í greiðsluvanda.

Íbúðalánasjóður hefur jafnframt mildað innheimtuaðgerðir stofnunarinnar með tilliti til ástands efnahagsmála.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu.

Þar kemur fram að frestur frá gjalddaga til sendingu greiðsluáskorunar verður framvegis fjórir til fjórir og hálfur mánuður frá elsta ógreidda gjalddaga í stað tveggja til tveggja og hálfs mánaðar áður.

Þá verður heimilt að afturkalla nauðungarsölu gegn greiðslu þriðjungs vanskila í stað helmings vanskila áður og rýmingarferli uppboðsíbúða hefur verið lengt úr einum mánuði í þrjá mánuði.

Þá hafa heimildir til greiðslufrestunar vegna sölutregðu á eldri íbúð verið rýmkaðar verulega. Íbúðalánasjóði bætist einnig það úrræði að lántakendur eigi val um að greiða eingöngu vexti og verðbætur af vöxtum í tiltekinn tíma, leiði það til lausnar á vandanum.

Umræddar heimildir koma til viðbótar eldri úrræðum, skuldbreytingum vanskila, lengingu lána og frystingu afborgana (höfuðstól, verðbótum og vöxtum) um allt að þrjú ár.

Í tilkynningunni kemur fram að úrræði Íbúðalánasjóðs vegna greiðsluvanda lántakenda eiga við, hvort sem lánin eru í innlendri eða erlendri mynt, svo fremi að lánin heyri undir Íbúðalánasjóð.

Auk þeirra ákvarðana sem hér hefur verið lýst og hafa þegar tekið gildi mun félags- og tryggingamálaráðherra leggja fram á Alþingi frumvarp til laga sem heimilar Íbúðalánasjóði að lengja lán viðskiptavina sinna um allt að 30 ár í stað 15 ára áður.

Einnig verða útfærðar reglur vegna mögulegrar útleigu Íbúðalánasjóðs á því húsnæði sem stofnunin kann að eignast á nauðungaruppboðum til fyrri íbúa, hvort sem um er að ræða húsnæði í eigu einstaklinga eða leigufélaga. Slík leiga yrði ávallt í takmarkaðan tíma í samræmi við hagsmuni beggja aðila.