Staða heimilanna hefur ekki verið betri síðan fyrir hrun bankakerfisins 2008. Þetta kemur fram í nýrri greiningu frá greiningardeild Íslandsbanka.
Þar kemur meðal annars fram að kaupmáttur launa hafi í lok síðasta árs verið orðinn svipaður og hann var þegar hann var mestur á þensluskeiðinu fyrir hrun bankanna árið 2008. Hafði hann þá aukist um 15,6% frá því að hann var minnstur eftir hrunið.
Þá segir einnig að vinnuaflsnotkun hafi aukist auk þess sem atvinnuleysi minnkaði töluvert á síðasta ári, en það var 5,0% að meðaltali á árinu samanborið við 5,4% á árinu 2013 og 6,0% á árinu 2012.
Í greiningunni segir jafnframt að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um 8,6% á milli áranna 2013 og 2014. Verðhækkun húsnæðis hafi bætt hag þeirra heimila sem eiga sitt eigið húsnæði, sem séu allflest íslensk heimili eða 73% á árinu 2013.
„Raunverð íbúða mun halda áfram að hækka samkvæmt okkar spá. Eiginfjárstaða heimilanna í húsnæði mun því styrkjast enn frekar á þessu ári gangi spáin eftir,“ segir að lokum í greiningunni.
Umfjöllunina má lesa í heild sinni hér .