Raf- og heimilistækjaverslunin Heimilistæki er komin í nýtt og stærra húsnæði við Suðurlandsbraut 26 (gamla Sigtún) eftir að hafa verið við Sætún 8 í tugi ára. Fyrirtækið er búið að taka húsnæðið í gegn segir í tilkynningu.

Í tilkynningu segir að heimilistæki hafi um langt árabil verið leiðandi í innflutningi og sölu á raf- og heimilistækjum og lagt áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi vöruúrval og góða og persónulega þjónustu. Heimilistæki eru með umboð fyrir mörg þekktustu vörumerki heims á sviði raf- og heimilistækja. Meðal umboða Heimilistækja eru Whirlpool, Bauknecht, Indesit, Philips, Vestfrost, Kenwood, Nad, Panasonic og Casio.