Velferðarráðherra er heimilt að gefa út reglugerð sem kveður á um greiðslu sérstakar þóknunar fyrir aukaafborganir af lánum eða uppgreiðslu lána hjá Íbúðalánasjóði (Íls). Samkvæmt reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs getur ráðherra gefið út slíka reglugerð ef sýnt þykir að hefðbundnar áhættustýringaraðferðir og svigrúm sjóðsins við vaxtaákvörðun nægi ekki til að verja hag sjóðsins. Þóknunina má leggja á þá lántakendur sem hyggjast greiða fasteignalán sín upp hraðar en skilmálar gera ráð fyrir eða greiða lánin upp að öllu leyti. Þóknunin skal vega upp að hluta eða öllu leyti mismuninn á uppgreiðsluverði skuldabréfs sem eigandi íbúðarhúsnæðis (Íls-veðbréfs) gefur út til Íbúðalánasjóðs og sambærilegs íbúðabréfs.
Ráðherra getur lagt gjaldið á lántakendurna að undanfenginni umsögn stjórnar sjóðsins um nauðsynlegar aðgerðir. Sambærilegt ákvæði er að finna í lögum um húsnæðismál. Þrátt fyrir alvarlega stöðu sjóðsins, sem einkum skýrist af uppgreiðslum lántakenda, hefur ekki verið gripið til þess að leggja á þóknun í því skyni að draga úr uppgreiðslum. Ljóst má vera að slík ákvörðun yrði umdeild, þar sem hún felur í sér aukna greiðslubyrði á þá lántakendur sem vildu greiða hraðar upp lán sín eða endurfjármagna húsnæðislán hjá öðrum lánveitanda.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.