Heimilum í vanskilum við Íbúðalánasjóð hefur fækkað um tæp 15% eða um 690 heimili frá áramótum. Í mánaðaskýrslu sjóðsins segir að undirliggjandi lánavirði einstaklinga í vanskilum, sem hlutfall af heildarlánavirði sjóðsins, haldi einnig áfram að lækka.

Í skýrslunni segir einnig að frá áramótum til loka októbermánaðar hafi Íbúðalánasjóður selt 230 fasteignir, sem sé mun meira en þær 105 eignir sem sjóðurinn seldi á sama tímabili í fyrra. Þá sé búið að samþykkja kauptilboð í 79 eignir til viðbótar þeim 230 sem séu þegar seldar og nú vinni tilboðshafar að fjármögnun kaupanna.

„Af þeim 2.549 eignum sem Íbúðalánasjóður átti í lok október hefur 2.125 eignum verið ráðstafað í leigu, sölumeðferð eða annað. Ríflega 400 eignir bíða frekari greiningar, en flestar þeirra eru á svæðum þar sem nokkurt offramboð er af eignum til sölu eða leigu,“ segir í skýrslunni.