Heimir Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs. Heimir er fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2 og hefur undanfarið starfað sjálfstætt sem ráðgjafi í auglýsinga- og markaðsmálum og þjónustað erlendar fréttastofur og kvikmyndafyrirtæki á ferð um landið.
Heimir starfaði 2011-2016 sem framleiðandi og markaðsráðgjafi fyrir Íslensku auglýsingastofuna og hefur m.a. komið að mörgum verkefnum á svið ferðamála í tengslum við Inspired by Iceland og Icelandair ásamt því að starfa sem þjálfari hjá Dale Carnegie. Heimir er Diplom Producer frá Kvikmyndaháskólanum í München og stundar nú MBA nám við Háskóla Íslands. Heimir hlakkar mikið til að takast á við þau verkefni sem Markaðsstofa Kópavogs tekst á við. Hann segir viðburði eins og tónleika með Justin Timerlake og Justin Bieber, koma Kópavogi á kortið sem bæ stórviðburða.
Markaðsstofa Kópavogs er sjálfseignarstofnun og hefur það hlutverk að efla ímynd og atvinnuþróun í Kópavogi, starfa að ferða- og markaðsmálum og stuðla þannig að því að bæta lífsgæði og glæða mannlíf og atvinnulíf í bænum. Markaðsstofan er brú á milli atvinnulífs og stjórnsýslu bæjarins og tengir saman ólíka hagsmunahópa í bænum.