Heimir Már Pétursson
Heimir Már Pétursson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Heimir Már Pétursson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Iceland Express frá og með næstu mánaðamótum. Heimir Már er með BA í stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands. Undanfarin sex ár hefur hann verið fréttamaður á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi, en þar áður var hann upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands í fimm ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Iceland Express.

Kristín Þorsteinsdóttir hefur gengt starfi upplýsingafulltrúa Iceland Express frá ágúst 2009.