Heimir Örn Herbertsson hæstaréttarlögmaður hefur hætt störfum hjá lögmannsstofunni Lex og mun taka við stöðu lektors við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Greint er frá þessu í DV .

Heimir Örn hefur verið einn af eigendum lögmannsstofunnar frá því að hún sameinaðist við lögmannsstofunnar Nestor fyrir tíu árum.

Hann hefur á undanförnum árum verið einn helsti sérfræðingur landsins á sviði samkeppnisréttar og löggjafar um samkeppnismál fyrirtækja, og sinnt kennslu við lagadeildina á því sviði á undanförnum árum.