Neytendastofa hefur ákveðið að sekta Heimkaup um 150.000 krónur fyrir framkvæmd við tilboð og útsölur.

Mál Neytendastofu snérist fyrst og fremst um að stofunin gengi í skugga um að vörur hefðu verið seldar á tilgreindu fyrra verði áður en afsláttur hafði verið auglýstur. Neytendastofa komst að því að flestar af vörunum höfðu ekki verið til sölu áður og var að sögn Heimkaupa um kynningartilboð að ræða.

Ákvörðun Neytendastofu segir að Heimkaup hafi ekki fylgt skyldum sem kynningartilboðum fylgja. Heimkaup tilgreindi ekki sérstaklega að um kynningartilboð væri að ræða og láðist að taka fram hversu langan tíma það gilti. Þá voru dæmi um að verð á vörunum væri ekki hækkað að kynningartilboðinu loknu.

Varðandi þær vörur sem ekki voru á kynningartilboð segir Neytendastofa að Heimkaupum hafi ekki tekist í öllum tilvikum að færa fullnægjandi sönnur á að aðrar vörur hafi verið seldar á tilgreindu fyrra verði.