Ferðskrifstofufyrirtækið Heimsferðir greindi frá því í dag að fyrirtækið hefur samþykkt að kaupa finnsku ferðaskrifstofukeðjuna Matka Vekka Group, sem er sú stærsta í Finnlandi.

Sameiginleg velta félagsins verður 35 milljarðar króna á þessu ári, að sögn framkvæmdastjórans Andra Más Ingólfssonar, en áætluð velta Matka á þessu ári nemur 12,4 milljörðum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.