Ferðaskrifstofan Heimsferðir á í yfirtökuviðræðum við danska ferðaskrifstofu, samkvæmt heimildamönnum Viðskiptablaðsins.

Heimsferðir gengu nýlega frá kaupum á sænsku ferðaskrifstofunni STS Solresor og norsku ferðaskrifstofunni STS í Gautaborg af STS International. Orðrómur er nú um það að fyrirtækið eigi í viðræðum við ónafngreinda ferðaskrifstofu í Danmörku.

Nánar er fjallað um málið í Viðskitpablaðinu í dag.