Heimshótel ehf. eiga bæði fasteign og rekstur hótelsins 1919 í Pósthússtræti í gamla Eimskipshúsinu. Andri Már Ingólfsson, eigandi félagsins segir rekstur hótelsins ganga vel og að methagnaður verði í ár.

Heimshótel ehf. sem á fasteignina er með neikvætt eigið fé upp á rúmlega milljarð króna. En Andri segir tvennt skekkja myndina. Annarsvegar hafi lán ekki verið leiðrétt í reikningum þar sem dómur hæstaréttar lá ekki fyrir. Hinsvegar hafi eignin ekki verið færð til raunvirðis í reikningum. „Verið er að vinna í endurfjármögnun og félagið ætti að vera komið með jákvætt eigið fé um áramót,“ segir Andri.