Ungar konur og stúlkur bera hitann og þungann af efnahagskreppunni í heiminum. Er þetta meðal þess sem kemur fram í Veftímariti um þróunarmál , sem var að koma út. Þar segir að ungar konur og stúlkur séu líklegri en strákar að upplifa fátækt og stelpum sé hættara við því en drengjum að vera kippt út úr skóla vegna kreppunnar.

Í Veftímaritinu er sagt frá niðurstöðum nýrrar rannsóknarskýrslu frá hugveitunni Overseas Development Institute og samtökunum Plan International. Í skýrslunni er ennfremur staðhæft að stúlkur búi við skertar lífslíkur vegna þess að fleiri stúlkubörn en piltbörn deyi áður en fimm ára aldri er náð.

Skýrsluhöfundarnir, Maria Stavropoulou og Nicola Jones, segja að margt leggist á eitt að búa stúlkum þrengri kost á undanförnum árum og nefna meðal annars langvarandi efnahagslægð, aukið kynjamisrétti og minni fjárráð. Fram kemur í skýrslunni að stúlkur búa við meiri matarskort og vannæringu en strákar og algengt sé konur minnki eigin matarskammt til að tryggja að aðrir í fjölskyldunni hafi meira að borða. Kreppan hefur líka leitt til þess að konur vinna lengri vinnudag fyrir minni tekjur, fleiri stúlkur séu teknar úr skóla til að vinna húsverk eða hættulega barnavinnu, jafnvel kynlífsstörf.