Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka. Er verðið á hrávörumarkaði í London nú skráð á 79,84 dollara tunnan. Þar er um að ræða framvirkt verð á olíu til afgreiðslu í desember.

Í New York er verðið þessa stundina 81,21 dollar tunnan. Hæst hefur verðið á markaði í London farið í 80,10 dollara það sem af er degi og í 81,47 dollara tunnan í New York.