Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, bendir á að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um útgöngu Breta úr ESB sýni í hnotskurn hinn mikla vanda sem ESB eigi við að etja, segir í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Jafnframt segir að mikil óánægja sé um alla Evrópu með ýmislegt í þróun Evrópusambandsins, ekki síst vegna  þess samruna sem hefur átt sér stað og þess að völd hafi í æ ríkara mæli verið flutt frá þjóðríkjunum til stofnana ESB í Brussel.

Því hvetur framkvæmdastjórn Heimssýnar til þess að Alþingi Íslendinga, sem þeir segja að hafi hafið vegferðina inní Evrópusambandið án þess að spyrja þjóðina, samþykki, líkt og svissneska þingið nýlega, að draga umsóknina formlega og tryggilega til baka.

„Við þessar aðstæður ætti öllum að vera ljóst hversu fráleitt það er að umsókn Íslands að ESB frá árinu 2009 skuli ekki hafa verið dregin tryggilega til baka líkt og Svisslendingar hafa nýverið gert,“ segir í ályktuninni.