Hollenska bruggfyrirtækið Heineken hefur tilkynnt um kaup þess á Syabar bruggfyrirtækinu í Hvíta Rússlandi sem er eitt af fyrrum ríkjum Sovétríkjanna. Hvíta Rússland á landamæri að Rússlandi, Úkraínu, Pólandi og Litháen.

Bjórneysla hefur aukist jafnt og þétt í Hvíta Rússlandi á síðustu árum og er heildarneyslan í landinu talin um 4,5 milljón hektolítra (1 hektólítri = 100 lítrar) á ári. Þar af er neysla á Syabar um 600.000 hektólítrar.