Bifreiðaumboðið Hekla lækkar verð á nýjum bílum um allt að 17% í kjölfar betri samninga við framleiðendur.

Lækkunin tekur strax gildi og þar með er að talsverðu leyti gengin til baka sú hækkun sem orðið hefur á nýjum bílum hjá fyrirtækinu frá áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Við sóttum fast að okkar framleiðendum um að fá betra verð í ljósi aðstæðna og erum í dag að lækka verðskrá okkar umtalsvert. Við teljum að með þessu séum við að leggja okkar lóð á vogarskálarnar í baráttu gegn verðbólgu,“ segir Knútur G. Hauksson, forstjóri Heklu í tilkynningunni.

„Verðbólgan er okkar helsti óvinur og atvinnulífið hefur  mikið um það að segja hvernig þau mál þróast.“

„Hækkun á bílum undanfarna mánuði er einn af þeim þáttum sem hafa leitt til hækkunar á vísitölunni og þar með aukinnar verðbólgu,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, framkvæmdastjóri bílasviðs Heklu.

„Krónan hefur veikst hratt frá áramótum og við urðum jafnt og þétt að hækka  verð á okkar bílum, þó hækkanir hafi ekki verið jafn miklar og gengislækkunin. Strax í byrjun árs hófum við jafnframt samningaviðræður við okkar framleiðendur um hvernig væri hægt að bregðast við þessu ástandi. Niðurstaðan er sú að Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi, ásamt KIA, samþykktu að koma til móts við okkur. Því getum við nú kynnt mikla verðlækkun á nýjum bílum, eða allt að 17%, sem tekur gildi strax í dag.“