Helen Breiðfjörð hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra Deloitte. Hún hefur undanfarin tíu ár starfað sem starfsmannastjóri hjá Sýn, áður Vodafone, en Helen starfaði hjá félaginu og fyrirrennurum þess í hátt í tvo áratugi.

Helen er með meistarapróf í mannauðsstjórnun frá London South Bank University og BA próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands.

„Við erum afar lánsöm að hafa fengið Helen til liðs við okkur enda býr hún yfir viðamikilli reynslu og ástríðu fyrir mannauðsmálum. Við viljum halda áfram að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fólkið okkar og mun Helen mun leiða það mikilvæga verkefni af miklum krafti. Við bjóðum hana innilega velkomna ,“ segir Þorsteinn Pétur Guðjónsson, forstjóri Deloitte, í fréttatilkynningu.