Helen Breiðfjörð hefur verið ráðin í starf starfsmannastjóra Vodafone. Fram kemur í tilkynningu að Helen hafi starfað hjá Vodafone um árabil. Hún var deildarstjóri þjónustuvers gamla Tals og síðar Og Vodafone frá 2000 til 2004, þegar hún hætti störfum og hélt utan til náms.

Helen Breiðfjörð.
Helen Breiðfjörð.

Hún kom aftur til starfa hjá Vodafone árið 2008 sem þjónustustjóri tæknivers, en varð síðar forstöðumaður þjónustuvers og svo einstaklingsþjónustu.

Helen er með meistarapróf í mannauðsstjórnun frá London South Bank University og BA próf í félagsfræði frá Háskóla Íslands.