Helena Karlsdóttir var kosin nýr stjórnarformaður Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar á aðalfundi félagsins fyrir skömmu.

Þær breytingar urðu á stjórn AFE að Helena Karlsdóttir, Svanfríður Jónasdóttir og Baldvin Esra Einarsson tóku sæti í stjórn félagsins, en Árni V. Friðriksson, Stefanía Traustadóttir og Oktavía Jóhannesdóttir hættu í stjórn.

Stjórnin hefur þegar komið saman og skipt með sér verkum

Stjórn AFE er þannig skipuð:

Helena Karlsdóttir, formaður

Svanfríður Jónasdóttir, varaformaður

Valur Knútsson, ritari

Árni K. Bjarnason, meðstjórnandi

Baldvin Esra Einarsson, meðstjórnandi