Helga Arnardóttir sem sagt hefur upp störfum hjá Birtingi stuttu eftir að hún var ráðin þangað sem yfirritstjóri segir að um mjög alvarlegan forsendubrest hafi verið að ræða á ráðningu hennar og að hún hafi ekki notið stuðnings stjórnenda félagsins í þeim breytingum sem hún hafi verið ráðin til að leiða. Helga greinir frá þessu á Facebook síðu sinni en segir jafnframt að hún hafi ekki notið þess ritstjórnarlega sjálfstæðis við útgáfu Mannlífs sem hún taldi nauðsynlegt grundvallaratriði til að starfi við í frjálsri og óháðri fjölmiðlun.

Lesa má Facebookfærslu Helgu í heild sinni hér að neðan:

Fyrir áramót sagði ég upp föstu starfi mínu hjá Ríkisútvarpinu og var ráðin sem yfirritstjóri Birtings. Uppi voru fögur fyrirheit og stór áform um að ráðast í töluverðar breytingar á Birtingi með tilkomu nýrra eigenda meðal annars í stafrænni uppbyggingu. Þegar til kastanna kom voru öll slík áform á sandi reist. Nokkrum dögum eftir að ég tók til starfa var útlit fyrir að um mjög alvarlegan forsendubrest yrði að ræða á minni ráðningu.

Stjórnendur tilkynntu mér þá einhliða ákvörðun þeirra um að verkefnum mínum og hlutverki yrði gjörbreytt og ég mótmælti þeim áformum. Eftir þann tíma var mér ljóst að ég naut ekki stuðnings stjórnenda Birtings í þeim breytingum sem ég var ráðin til að leiða. Þá naut ég ekki heldur þess ritstjórnarlega sjálfstæðis við útgáfu Mannlífs sem ég tel nauðsynlegt grundvallaratriði til að starfa við í frjálsri og óháðri fjölmiðlun.

Ég hef einungis starfað á tveimur fjölmiðlum á mínum 15 ára ferli og átt gott og heilbrigt samstarf við atvinnurekendur mína og samstarfsmenn á þeim tíma. Framkoma vinnuveitenda á þessum skamma tíma hjá Birtingi olli mér miklum vonbrigðum og eftir átján daga í starfi var alveg ljóst að forsendubrestur væri kominn í þetta samstarf og því yrði ekki haldið áfram.