Helga Björg Kjerúlf
Helga Björg Kjerúlf
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Helga Björg Kjerúlf hefur verið ráðin framkvæmdarstjóri myndlistarhátíðarinnar Sequences sem haldin verður í tíunda sinn í október næstkomandi.

Helga hefur komið að ýmsum listviðburðum í gegnum tíðina, s.s. Listahátíð í Reykjavík og myndlistarhátíðinni Cycle. Hún starfar einnig hjá Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sem verkefnastjóri íslenska skálans í Feneyjum.

Helga útskrifaðist með BA gráðu í arkitektúr árið 2012 frá Listaháskóla Íslands. Þá er hún einnig að ljúka meistaranámi í Markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og Nýsköpun og viðskiptaþróun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

„Ég er full tilhlökkunar að takast á við þetta nýja starf og hlakka sérstaklega til að vinna með því góða fólki sem kemur til með að taka þátt í hátíðinni í ár,“ segir Helga. „Framundan eru spennandi tímar hjá vaxandi hátíð og margar skemmtilegar áskoranir sem gaman verður að vinna úr.“

Sequences real time art festival er sjálfstæð alþjóðleg myndlistarhátíð sem haldin er annað hvert ár í Reykjavík. Hátíðin beinir sjónum sínum sérstaklega að verkum í rauntíma og hefur frá upphafi lagt upp með að þar ríki andi frumkvæðis, tilrauna og áræðni.

Meðal fyrri listamanna sem sýnt hafa á hátíðinni eru Joan Jonas, David Horvitz, Hekla Dögg Jónsdóttir, Guido van der Werve, Ragnar Kjartansson, Emily Wardill, Ragnar Helgi Ólafsson, Carolee Schneemann, Rebecca Erin Moran, Finnbogi Pétursson og Alicja Kwade svo örfáir séu nefndir.

Hátíðin haldin í tíunda sinn

Sýningastjórar fyrri hátíða hafa verið íslenskir og erlendir listamenn og sýningastjórar og má þar nefna Margot Norton, Markús Þór Andrésson og Alfredo Cramerotti.

Að hátíðinni standa listamannareknu sýningarstaðirnir Kling & Bang, Nýlistasafnið og Kynningarmiðstöð Íslenskrar myndlistar ásamt öflugu fagráði sem í sitja listamenn og óháðir aðilar sem eru virkir í listamannareknu senunni í Reykjavík hverju sinni.

Sequences real time art festival verður haldin í tíunda skiptið dagana 15.-24. október 2021 næstkomandi. Yfirskrift og sýningastjórar hátíðarinnar verður kynnt á næstu vikum.