Jón Ingi Herbertsson hefur látið af störfum sem fjárfesta- og almannatengill hjá Marel. Við starfinu tekur Helga Björk Eiríksdóttir. Hún mun hefja störf í næstu viku, segir í tilkynningu um breytinguna til Kauphallar.

Helga Björk hefur undanfarið starfað sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði almanna- og fjárfestatengsla. Hún hafði umsjón með samskiptamálum fyrir skilanefnd og slitastjórn Kaupþings banka á árunum 2009 og 2010 en var áður markaðs- og kynningarstjóri Kauphallar Íslands, síðar NASDAQ OMX Iceland, um átta ára skeið. Jafnframt hefur Helga Björk starfað við fjölmiðla auk annarra starfa. Þá er Helga Björk stjórnarformaður Sparisjóðs Svarfdæla á Dalvík.

Helga Björk er viðskiptafræðingur með MBA gráðu frá Háskólanum í Edinborg. Hún útskrifaðist með BA gráðu í ensku og ítölsku frá Háskóla Íslands 1997 og lauk prófi í hagnýtri fjölmiðlun 1999 frá sama skóla. Helga Björk lauk prófi í markaðs- og útflutningsfræði frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2002 og hefur lagt stund á verðbréfaviðskiptanám við Háskólann í Reykjavík.