Helga Bragadóttir hjúkrunarfræðingur, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs í hjúkrunarstjórnun við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítala, hefur hlotið inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna (American Academy of Nursing - AAN).

Hún er fjórði prófessorinn í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands sem fær inngöngu í akademíuna, en henni fylgir nafnbótin Fellow of the American Academy of Nursing (FAAN).

Áður höfðu prófessorarnir Ásta Steinunn Thoroddsen, Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Helga Jónsdóttir hlotið inngöngu í AAN. Meðmælendur Helgu voru samstarfskonur hennar í Bandaríkjunum, Beatrice Kalisch, prófessor emeritus við University of Michigan, og Teddie Potter, prófessor við University of Minnesota.

Rannsóknir Helgu á sviði hjúkrunarstjórnunar hafa snúist um gæði og öryggi þjónustunnar, nýtingu tækni í heilbrigðisþjónustu, vinnu og vinnuumhverfi í hjúkrun. Síðustu 10 ár hefur Helga fyrst og fremst sinnt rannsóknum á gæðum hjúkrunar og teymisvinnu.

Helga hefur haft umsjón með og kennt hjúkrunarstjórnun og forystu við Háskóla Íslands og á því sviði verið frumkvöðull í framsæknum kennsluaðferðum, svo sem nýtingu tækninnar og hnattrænni nálgun.

Í öllum verkefnum sínum hefur Helga lagt áherslu á þverfræðilegt og alþjóðlegt samstarf og hefur hún leitt og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum innan lands og utan sem hafa leitt til umbóta á vinnu og vinnuumhverfi í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu og þar með þjónustu við sjúklinga.

Helga útskrifaðist með BS-próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og starfaði næstu ár við barnahjúkrun sem klínískur hjúkrunarfræðingur, hjúkrunarstjórnandi og kennari.

Hún hélt síðar til Bandaríkjanna þar sem hún lauk MS-prófi í barnahjúkrun og hjúkrunarstjórnun og doktorsprófi í hjúkrunarstjórnun frá University of Iowa. Frá heimkomu úr framhaldsnámi árið 2000 hefur Helga starfað við stjórnun, kennslu og vísindarannsóknir í Háskóla Íslands og Landspítala.

Bandaríska hjúkrunarakademían, sem var stofnuð árið 1973, hefur það hlutverk að þjóna almenningi og hjúkrun og vera virkur þátttakandi í stefnumörkun heilbrigðisþjónustu. Félagar í AAN eru rúmlega 2700 frá fjölmörgum löndum heims. Þeir sem hljóta inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna hafa með störfum sínum haft áhrif í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu í heimalandi sínu og á alþjóðavettvangi.