Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins, var kjörin varaformaður Samtaka atvinnulífsins á stjórnarfundi SA í dag. Þá var framkvæmdastjórn SA einnig kjörin á fundinum. Frá þessu er greint á vef SA.
Framkvæmdastjórnin er skipuð formanni, Eyjólfi Árna Rafnssyni, og varaformanni ásamt sex mönnum sem stjórnin kýs úr hópi stjórnarmanna.
Framkvæmdastjórn SA starfsárið 2020-2021 skipa:
- Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður
- Árni Sigurjónsson
- Bjarnheiður Hallsdóttir
- Helga Árnadóttir
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir
- Jón Ólafur Halldórsson
- Lilja Björk Einarsdóttir
- Sigurður R. Ragnarsson