Helga Hauksdóttir og Vigdís Sigurðardóttir hafa hafið störf hjá Landi lögmönnum. Helga hefur sérhæft sig í skatta- og félagarétti en Vigdís í hugverkarétti.

Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og starfaði síðast sem lögfræðingur hjá Ernst & Young. Vigdís lauk meistaragráðu í lögfræði frá Vanderbilt University Law School í Tennessee og starfaði síðast hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.