Helga Viðarsdóttir hefur ráðin framkvæmdastjóri IMIC Ísland, sem m.a. rekur fjarskiptafyrirtækið Alterna. Í framhaldi af því ákvað hún að segja sig úr stjórn Vodafone til að forðast hagsmunaárekstra sem kunna að koma upp vegna starfa hennar.

Fram kemur í tilkynningu frá Vodafone að eftirmaður hennar í stjórninni verði kjörinn á næsta aðalfundi félagsins.

Helga var áður markaðsstjóri Norræna hússins. Ekki er búið að ráða í hennar stöðu þar svo vitað sé.