Þau Helga Gunnarsdóttir, viðskiptafræðingur, Jón Þór Grímsson, lögfræðingur og Sigríður Hrund Guðmundsdóttir, viðskiptafræðingur voru á hluthafafundi Landsbréfa á föstudag kjörin til setu í stjórn félagsins. Þau taka við af Halldóru G. Hinriksdóttur, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan í júní 2012 og Helgu Friðriksdóttur, sem setið hefur í stjórn félagsins síðan í nóvember í fyrra. Þá hefur Jón Steindór Valdimarsson sömuleiðis farið úr stjórninni. Hann tók sæti í henni í apríl í fyrra.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbréfum að Sigurbjörn Jón Gunnnarsson var á fundinum, sem haldinn var eftir lokun markaða á föstudag, kjörinn formaður stjórnar.

Sigþór Jónsson er framkvæmdastjóri Landsbréfa.